Allt á fullu fyrir jólin , mikið pantað , sendi út um allt land. Get ennþá bætt við pöntunum sem afgreiðast fyrir jól
30. nóvember 2009
Var að setja fullt af vörum á tilboð :) Endilega kíkið á linkinn tilboð og þar sjáið þið úrvalið .
Það er búið að vera mjög mikið að gera í haust að merkja og greinilegt að fólk velur gagnlegar og góðar gjafir í ár eins og reyndar í fyrra líka og er frábært hvað margir eru tímanlega að panta jólagjafirnar.
8. nóvember 2009
Allt komið í gang fyrir jólin :))))) Um að gera að panta tímanlega .
1. október 2009
Ísaumur er komin í klasasamstarf við Saumastofuna Írisi á Skagaströnd en það fyrirtæki sérhæfir sig í að sauma vinnufatnað fyrir atvinnulífið. Saman bjóðum við upp á merktan vinnufatnað :=)
5. september 2009
Landbúnaðarsýningin gekk vel og var fullt að gera allann tímann og þakka ég góðar viðtökur á Vesturlandinu :)
Landbúnaðarsýningin Glæta 2009 verður haldin í Borgarnesi 28-30 ágúst . Ísaumur verður alla helgina og merkir vörur og flleira á staðnum .
26. ágúst 2009
Ísaumur er tilnefnt til Hvatningarverðlauna SSNV árið 2009 :))))) Er mjög stolt af því .,.,, 15 október n.k. mun ég síðan halda kynningu á fyrirtækinu ásamt fleirum sem tilnefndir eru og verður þá skorið úr hver hlýtur Hvatningarverðlaunin.
20. ágúst 2009
Veturinn hefur verið frekar rólegur í merkingum fyrir utan janúar sem var nóg að gera .,.,. merkti fyrir sunddeild Tindastól handklæði með lógóinu þeirra og stuttermaboli fyrir UMF Fram á Skagaströnd og fleira smálegt .,., Er farin að huga að sumrinu með tilliti til markaða, sýninga og þvíumlíku, þannig að endilega látið mig vita ef þið vitið um eitthvð að sem verður í gangi. Einnig er ég að fara í samstarf við www.barnagaman.is sem er sölusíða á Íslandi og Svíþjóð og verður spennandi að vita hvernig það kemur út.
10.maí 2009
Þá er komið nýtt útlit á síðuna eins og sjá má.
Allt er frágengið með umboðið á CINTAMANI vörunum og er hægt að fara inn
á linkinn www.cintamani.is og sjá vöruúrvalið þar.
31. des 2008
Ísaumur.is er með í átaki er nefnist Íslensk gjöf á heimasíðunni www.nattura.is
Hægt er að fara beint inn á linkinn hér : http://www.nattura.info/islenskgjof/
14.desember 2008
A.T.H Er komin með umboð fyrir hinar vinsælu CINTAMAN vörur. 11. desember 2008
Fullt af vörum til á lager :)
Um að gera að drífa sig að panta ef það á að vera í jólapakkann í ár.
4. desember 2008
Tilvalið í jólapakkann:
Handklæði með stjörnumerki, öll stjörnumerkin til á lager, sjá fleiri myndir í myndalinknum.
Handklæði með Besta amma, afi og fleira, sjá fleiri myndir í myndalinknum.
20. nóvember 2008
   
Öll stjörnumerkin
  
Nú er tilvalið að vera tímanlega í jólagjafainnkaupunum.
 |