|
Ef sauma á lógó félags eða fyrirtækis þarf að hanna lógóið í saumaformati.
Best er að senda til mín merki í tölvutæku formi.
Merki eru unnin í flestum tilfellum í hugbúnaði sem nefnist Adobe Illustrator eða Marcomedia Freehand.
Þessi hugbúnaður notar útlínu tækni sem heitir vector.
Skjölin úr þessum forritum enda t.d. á .AI, FH8, FH9, FH11 eða EPS. Gott er að hafa samband við auglýsingastofuna og/eða prentfyrirtækið sem þú hefur látið vinna fyrir þig áður til að nálgast þitt merki í vector formi.
Einnig er nú hægt að senda merki í jpg formati.
|